Rafræn Gjafakort Kringlunnar bylting í fjártækni

Kringlan er fyrsta verslunarmiðstöð í heiminum til að gera viðskiptavinum kleift að vera með eitt gjafakort fyrir alla verslunar – og þjónustuaðila Kringlunnar.  Þessi nýja fjártæknilausn frá Leikbreyti gerir viðskiptavinum mögulegt að vera með gjafkortið í veskinu í símanum og sjá þar raunstöðu, fá áminningar um að nota kortið og því minni hætta á fjármunir viðskiptavina Kringlunnar glatist.

Innleiðing Leikbreytis á Gift-to-wallet kerfi félagsins fyrir utanumhald, sölu og rekstur gjafakorta Kringlunnar er sú stærsta sem félagið hefur gert hingað til.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Háskóla-,iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók formlega við fyrsta gjafakortinu í dag og fór eins og aðrar ungar konur í snyrtivörudeild Hagkaups og verslaði með nýju gjafakorti Kringlunnar.

Helsti kostur kerfisins er að hægt er að selja og gefa út gjafakortin rafrænt að fullu án þess að viðskiptavinir þurfi að bæta við nýju smáforriti í símann sinn þar sem gjafakortin fara beint í Apple eða Google Wallet.  Kerfið er því mun umhverfisvænna þar sem það dregur úr útgáfu plastkorta og umbúða sem áður einkenndu gjafakort. Eins opnar þetta á ný markaðstækifæri fyrir Kringluna til að koma skilaboðum til korthafa um t.d. lengri opnunartíma, viðburði í Kringlunni og áminningar um að nota kortið þegar styttist í að gildistími kortsins ljúki.
Rafrænu gjafakortin hafa marga kosti bæði fyrir korthafa sem og Kringluna en nú geta korthafar fylgst með inneign á gjafakorti í símanum en eins heldur kerfið utan um uppgjör við verslanir og gefur Kringlunni raunstöðu um ónotuð kort og innlausn sem gefur frábæra yfirsýn.

Innleiðing kerfisins er hluti af þeirri stafrænu vegferð sem Kringlan er á og hefur verið í og er þetta mikilvægur þáttur, það sem heillaði okkur ekki síst við Gift to wallet var hvernig það skapar ný markaðstækifæri fyrir Kringluna í samanburði við fyrri lausnir.“  Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar

„Við erum afar þakklát fyrir það traust sem Kringlan sýnir Leikbreyti og Gift to wallet lausninni með stærstu innleiðingu okkar til þessa. Erlend stórfyrirtæki og verslunarmiðstöðvar hafa verið að sýna lausninni áhuga undanfarið. Kostirnir eru fjölmargir og við  spáum meiri ánægju viðskiptavina sem og aukningu á gjafakortsölu í Kringlunni. Ég lýt á uppsetninguna sem byltingu í Íslenskri greiðslumiðlun“  Yngvi framkvæmdarstjóri Leikbreytis

„Mig langar að óska ykkur til hamingju með að vera í forystu þegar kemur að stafrænni tækni og nýsköpun og leiða þá vegferð að bjóða upp sterkari og betri þjónustu við fólk. Það sem Kringlan, Leikbreytir og öll nýsköpunarfyrirtæki eru alltaf að hugsa um er að bæta upplifun þeirra sem þau eru að þjónusta hverju sinni,“ Var haft eftir Áslaugu Örnu sem hélt stutta ræðu við tilefnið.

Mörg af stærstu verslunarfyrirtækjum landsins hafa valið lausn Leikbreytis Gift to Wallet til að halda utan um gjafakort sín en lausnin hentar bæði fyrir verslanir og verslanamiðstöðvar. Lausnin gerir verslunum og þjónustuaðilum kleift að gefa út gjafakort, vildarkort, inneignakort, beiðnir og starfsmannakort bæði á hefðbundin hátt í prenti og í Apple og Google Wallet. Með kortunum er hægt að greiða fyrir vörur í verslun þar sem kerfið er samþáttað helstu vefverslunarkerfum og afgreiðslukerfum.

Fjölmiðlar fjölluðu um gjafakortið:

https://vb.is/frettir/aslaug-vigdi-nyja-greidslulausn-kringlunnar/

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2023/10/03/rafraen_gjafakort_fyrir_vidskiptavini_kringlunnar/

https://www.visir.is/g/20232470462d/rad-herra-fekk-fyrsta-gjafa-kort-sinnar-tegundar-i-heimunum

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *