Aukin sala með betri svörun

aukin sala med betri svorun

Takmarkaður líftími sölutækifæra á netinu er þekktur og mín eigin reynsla er sú að sölutækifæri kólna hratt sem koma í gegnum netið ef þeim er ekki svarað tímalega.

Eins hafa verið gerða rannsóknir sem sýna að sölutækifæri sem skapast í gegnum fyrirspurnir á netinu kólna mjög hratt og skipta oft mínútur en ekki klukkustundir máli þegar kemur að því að svara viðskiptavinum og ná sölunni.

Með því að svara hraðar hinum ýmsu fyrirspurnum með snjallmennum og aukinni sjálfvirkni aukum við líkur á að viðskiptavinir kaupi vörurnar okkar. Eins bætum við þjónustu við núverandi viðskiptavini og lengjum líftíma þeirra.

Þetta er sérstaklega mikilvægt í dag þar sem nýjar kynslóðir kjósa að eiga öll samskipti stafrænt en ekki í gegnum símaver.

Við hjá Leikbreytir höfum aðstoðað fyrirtæki síðustu ár við að taka fyrstu skrefin í að innleiða netspjall og koma upp lausnum til að mæla fjölda fyrirspurna sem fyrirtæki fá í gegnum tölvupóst og netspjall með eða án snjallmenna.

Ávinningur:

– Fá yfirsýn yfir fjölda fyrirspurna og svartíma

– Finna tækifæri til að fyrirbyggja fyrirspurnir með bættri þjónustu

– Finna tækifæri til að svara endurteknum fyrirspurnum sjálfvirkt

Umfram allt betri þjónusta og aukin sala.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *