GRUNNLAUSNIR

Hýsing

Við aðstoðum fyrirtæki með að velja bestu
lausnina þegar kemur að hýsingu og hýsum
þau kerfi sem við smíðum.

Hýsing lausnir - leikbreytir.is

Hýsing
og rekstur

Við kappkostum að koma okkar viðskiptavinum í öfluga og örugga hýsingu. Við endurseljum öfluga hýsingu fyrir þær lausnir sem við smíðum og rekum einungis þjónustur ofan á hýsingarkerfi aðila sem hafa allar þær öryggisvottanir sem við teljum þarfar. Við leggjum áherslu á að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar um hámarks uppitíma.

Við endurseljum hýsingar frá öflugum þjónustuaðilum hýsinga almennt en rekum okkar eigin Plesk þjón í umhverfi sem gerir okkur kleift að bjóða upp á vefhýsingar með daglegri afritun. Við sérhæfum okkur í WordPress hýsingum og pökkum saman hýsingu og þjónustu í heildarpakka fyrir viðskiptavini okkar sem kjósa að hafa vefverslanir og vefkerfi í öruggum höndum. Við bjóðum ekki upp á pósthýsingar heldur endurseljum þess í stað Office 365 eða Google G-suite og aðstoðum fyrirtæki við að færa sig í skýjaþjónustur.

Meiri áreiðanleiki

Lágmarks niðri tími

Aukin þægindi